Fley þetta er smíðað árið 2000 í Simek  skipasmíðastöðinni í Flekkefjord, Noregi.  Fékk það nafnið Lunar Bow og var eigandinn Lunar Fishing Co., Peterhead, Skotlandi. 

Skipið sem er bæði útbúinn á troll-, og nótaveiðar er 61,2 metrar á lengd og 13,2 metrar á breidd, 1519 GT, 507 NT og 2070 DWT svona til að hafa allar tölur á hreinu. 

Aðalvél skipsins er ættuð frá Finnlandi og nefnist Wärtsila 12V32 fullu nafni.  Nær hún á góðum degi að framleiða 5520 kW eða 7500 hestöfl.

Lestar skipsins bera fullstappaðar um 1540 rúmmetra sem deilast svolítið óeigingjarnt á 9 tanka sem allir eru búnir RSW kælikerfi með afkastagetu upp á 2 x 65o.ooo kcal/h.

Svefnpláss um borð er í 15 kojum og svo er pláss fyrir 3 með góðu móti í setustofunni og hefur það pláss nokkrum sinnum verið nýtt.  Áhöfn skipsins er 13 - 15 menn og ættu því allir að hafa sína koju.

Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 62
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 191290
Samtals gestir: 87094
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:50:52