Færslur: 2011 Júní

23.06.2011 13:32

Þriðji túr eftir páska

Vegna fjölda áskorana ... eða 2 réttara sagt, og það frá sama manninum þá hef ég áhveðið að setjast hérna niður, berja hausnum í lyklaborðið og sjá hvað kemur út úr því. 
Eins og titillinn ber með sér þá er 2 túrum lokið þegar þetta birtist á veraldarvefnum.  Ég veit ekkert hvað gerðist í þeim túrum.  Flóknara er það ekki.  Síðuhöfundur var í fríi þá til að ... veiða fisk.  Eða það var meiningin í það minnsta.  Er nokkuð viss um að hlutfallið á milli drukkinna bjóra og veiddra fiska sé einhverstaðar á bilinu 3:1 og 4:1.  En það er ekki það með sagt að ég hefi drukkið svo afskaplega marga bjóra.

En hvað um það.  Þessi túr.  Ég veit sitthvað um þennann túr sem hægt væri að spinna úr langa og leiðinlega sögu.  En til að vera ekki að tegja lopann of mikið þá verður hún einhvernvegin svona:

Við fórum úr höfn, silgdum langleiðina til Jan Mayen, stöldruðum þar við í 3 tíma og snérum svo aftur á Íslandsmið, vorum á veiðum þráðbeint austur af einhverjum bæ á Austfjörðum og erum nú á leið í land með allann þann afla sem við náðum.
Flóknara er það ekki.  Ef eitthvað annað markvert hefur gerst þá hefur það alveg farið fram hjá mér.

Veit svosem ekkert hvað ég á að segja meira þannig að þá er örugglega kominn tími á að kveðja.

Meira seinna einhverntíman.
Jan Mayenkveðjur af Grímsanum.
  • 1
Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 62
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 191290
Samtals gestir: 87094
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:50:52